Terms of service

Skilmálar

Afhending vöru

Pantanir eru sendar með Póstinum innan þriggja virkra daga frá því að greiðsla er móttekin. 

Korterí áskilur sér rétt til að hætta við pöntun, t.d. ef vara reynist uppseld, vegna rangra verðupplýsinga eða ef vara er ekki lengur í boði.

Skilafrestur

14 daga skilafrestur er frá því að pöntun er móttekin þegar pantað er í gegnum netverslun. Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skil nema um gallaða vöru sé að ræða. Ef vörunni er skilað innan 14 daga þá er hún endurgreidd að fullu eða hægt að skipta í aðra vöru.

Hafið samband gegnum skilaboð á tölvupósti: korteri@korteri.is ef þið viljið skipta eða skila vöru.

Verð og greiðsla

Athugið, að verð í netverslun getur breyst án fyrirvara.

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Sendingarkostnaður fer eftir gjaldskrá sendingaraðila.

Greiðsla fer fram með millifærslu eða greiðslukorti í gegnum örugga greiðslusíðu Verifone skv. greiðsluskilmálum Verifone.

Trúnaður

Korterí biður aðeins um þær upplýsingar, sem nauðsynlegar eru vegna greiðslu fyrir vörur og sendingar. Fullum trúnaði er heitið um allar upplýsingar frá kaupanda í tengslum við viðskiptin. Engar upplýsingar eru afhentar þriðja aðila, nema þær sem nauðsynlegar eru til að koma vörunni til skila, þ.e. nafn, heimilisfang og símanúmer.

Um Korterí

Eigandi Korterí er Mikaela Þórisdóttir

Netfang: korteri@korteri.is